ÆFINGAPLAN

Sérsniðið æfingaplan sem hentar byrjendum í ræktinni. Einföld og skýr plön sem taka óöryggið úr salnum. Við vinnum mikið með tækin og einfaldar æfingar með skýrum leiðbeiningum og æfingamyndböndum svo þú veist alltaf nákvæmlega hvað þú átt að gera!

NÆRING

Þú færð þá aðstoð sem þú þarft, hvort sem það er uppsett matarplan eða aðstoð við að læra að tracka macros - einfaldlega það sem hentar þér og þínum markmiðum! Engir megrunarkúrar eða flóknar reglur. Finnum leið til að næra líkamann þinn svo þú hafir orku út í daginn.

STUÐNINGUR OG AÐHALD

Þú ert aldrei ein á báti! Við heyrumst vikulega þar sem við förum yfir hvernig gengur, hvernig þér líður, svörum spurningum og sjáum til þess að þú sért með plan sem hentar þér og þínum markmiðum.

FRÆÐSLA

Þú færð aðgang að möppu sem er full af fræðsluefni, t.d. uppskriftir, fyrirlestrar um næringu, fæðubótarefni, tíðarhringinn, markmiðasetningu og margt fleira!